Atvinnu- og menningarnefnd fundur nr. 22

22.11.2021 20:00

Atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar

22. fundur

Fundargerð

Mánudaginn 22. nóvember 2021 kl. 20:00 kom atvinnu- og menningarnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundarmenn voru, Vignir Sigurðsson formaður, Ásrún Árnadóttir, Eydís Ösp Eyþórsdóttir, Líney Emma Jónsdóttir og Ingibjörg Stella Bjarnadóttir fulltrúar í nefndinni og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Erindi frá Leikfélagi Hörgdæla

Lagt fram erindi frá Leikfélagi Hörgdæla þar sem óskað er eftir styrk til félagsins vegna covid hafa tekjur af rekstri hússins dregist verulega saman.

Atvinnu- og menningarnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að óskað verði eftir ársreikningum Leikfélagsins og Mela vegna áranna 2019 og 2020 og tilgreind verði hugmynd að styrkupphæð.

2. Samningar við menningarfélög og styrkir

Farið var yfir stöðu samninga við menningarfélög í sveitarfélaginu og styrkveitingar til þeirra.

3. Rekstur félagsmiðstöðvar

Greint var frá starfsemi félagsmiðstöðvar og rekstrarlegri stöðu.

4. Rekstur íþróttamiðstöðvar

Farið var yfir rekstur íþróttamiðstöðvar á árinu.

5. Gjaldskrár 2022

Lagðar fram tillögur að gjaldskrám fyrir íþróttamiðstöð fyrir árið 2022 og farið yfir þær.

Atvinnu- og menningarmálanefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að á árinu 2022 verði stakt gjald fyrir fullorðinn í sund kr. 1.050,- og kr. 300,- fyrir börn. Auk þess verði gerðar einstaka breytingar á gjaldskrá íþróttamiðstöðvar í takti við verðlagsbreytingar.  Þá samþykkti nefndin að leggja til við sveitarstjórn að á árinu 2022 eigi íbúar sveitarfélagsins kost á sundkorti án greiðslu, með sama hætti og á árinu 2021.

7. Fjárhagsáætlun 2022

Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun stofnana sveitarfélagsins sem undir nefndina heyra. 

Atvinnu- og menningarnefnd samþykkti fjárhagsáætlunina fyrir sitt leyti. Þá samþykkti nefndin að leggja til við sveitarstjórn að styrkur til niðurgreiðslu þátttökugjalda barna í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi verði kr 45.000,- fyrir árið 2022.

8. Atvinnumál í sveitarfélaginu

Lagt fram yfirlit yfir vinnuafl og skráningu atvinnulausra í sveitarfélaginu. 13 einstaklingar voru á atvinnuleysisskrá í sveitarfélaginu í október 2021.  Atvinnuleysi er því 3,4% í október samanborið við 10,3% þegar mest var á árinu, í apríl 2021. Nefndin lýsir ánægju sinni með þessa þróun.

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 21:30